Þarf að leysa strax

Þetta er bara mál sem ríkisvaldið þarf einfaldlega að leysa strax! - Nema ætlunin sé að hér á landi verði teknar upp einhverjar kínverskar fæðingatakmarkanir.
mbl.is Ljósmæður segja upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Huh, er ekki hægt að fá Pólskar ljósmæður æi staðin fyrir þessar sem eru hættar, fyrir klink ?

Fransman (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 19:26

2 Smámynd: Jóhanna Hafliðadóttir

Það ætti að banna ljósmæðrum að segja upp nema með a.m.k. 9 mánaða fyrirvara.

Jóhanna Hafliðadóttir, 30.6.2008 kl. 19:51

3 Smámynd: haraldurhar

    Sæll nafni. 

     Hef ekki trú a að taka þurfi til ráðstafanna um takmörkun barneigna, þau koma víst áfram undir þó ljósur segi upp stöðum sínum.   Mitt álit er það að  skera allt heilbrigðiskerfið upp, og koma einhverju skikki á þessi mál. Það á auðvitað að leyfa fólki að segja upp og selja vinnu sína til þeirra  er meta hana að verðleikum, ekki er alltaf hægt að leggja niður skottið og semja í hvert sinn og einhverjir ´segja upp stöðu sinni.  Það eru nú einu sinni ekki til endalausir fjármunir hjá Ríkinu.

haraldurhar, 30.6.2008 kl. 19:55

4 identicon

Já það þarf klárlega að gera eitthvað í þessum málum sem fyrst! Og auðvita á að hækka laun ljósmæðra, 6 ára háskólanám og rétt um 300 þús í byrjunarlaun!! Ekki væri ég til í að fá þau laun fyrir 6 ár í háskóla.

AndriR (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 20:03

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þetta er til skammar fyrir ríkið

Hólmdís Hjartardóttir, 30.6.2008 kl. 21:38

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Kærar þakkir fyrir réttmætu ábendinguna á síðunni minni, Haraldur...  Ég er búin að laga þetta og notaði tækifærið til að breyta fleiri textum.

 

Lára Hanna Einarsdóttir, 30.6.2008 kl. 22:21

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hvaða ríkisvald Haraldur?  Eru hér einhverjir við stjórn?

Sigrún Jónsdóttir, 30.6.2008 kl. 22:48

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þetta eru heldur betur fjölbreyttar athugasemdir. Góð hugmynd Jóhanna þetta með 9 mánuðina. Ekki líst mér alveg á það sem þú segir.Ég held að smfélagið verði að taka á sig að borga heilbrigðisstarfsfólki mannsæmileg laun. Það dugar ekki að einkavæða. Þá verða það líklega forréttindi hinna ríku að fá þessa þjónustu. Andri ég held að meðllaunin séu eitthvað rúm 300 þús. Svo er þetta góð spurning Sigrún.

Haraldur Bjarnason, 1.7.2008 kl. 07:25

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

..átti að vera: Ekki líst mér alveg á það sem þú ert að segja nafni. Ég held að sanfélagið.........

Haraldur Bjarnason, 1.7.2008 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband