Hvaða andsk....aðila

..misskilningur milli aðila sem voru að skilja. ....dæmigert orðalag frá lögreglu eða lögfræðingi. Þetta aðila tal endalaust af  hverju má ekki segja: ...þarna var misskilningur milli fólks sem var að skilja.....þetta er óskiljanlegt, svona orðagjálfur, þegar hægt er að nota einföld íslensk orð.
mbl.is Ekki ákært í kattarmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

já, litlar kröfur um gott mál nú til dags......eða erum við að verða svona gömul?

Hólmdís Hjartardóttir, 28.6.2008 kl. 10:16

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Þetta er ömurlegt hvernig fréttir eru sagðar í dag. Nánast á stofnanamáli. Lastu pistil Þóru Þórarinsdóttur YFIR STRIKIÐ í 24 stundum í gær? Þar er hún einmitt að tala um einn vitleysisfrasann.

Víðir Benediktsson, 28.6.2008 kl. 12:17

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ég kenni því um að "ungdómurinn nú til dags" les ekki lengur bækur og fær ekki þá málvitund sem við fengum með því að vera sí lesandi. Það er varla von að fólk sem varla er læst sé þokkalega skrifandi.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 28.6.2008 kl. 12:33

4 identicon

Sammála Víði, fréttir eru mikið til sagðar á stofnanamáli. En læs maður sem ekki les er engu betur settur en ólæs maður.

Andrir (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 13:25

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já það virðast engar kröfur vera gerðar til blaðamanna Hólmdís. Þeir þurfa að vera vakandi þegar þeir fá fréttatilkynningar í hendur og þegar þeir lesa af vefjum lögreglu og dómstóla. Þar skrifa háskólamenntaðir lögfræðingar, sem eru mestu málsóðar sem til eru. Las nýlega grein eftir Sigurð Líndal sem hefur áhyggjur af að léleg íslenskukunnátta hjá háskólanemum geti komið niður á störfum þeirra seinna, til dæmis dómum hjá lögfræðingum. En það er gaman að sjá þessar athugasemdir hér frá fólki sem er frá 24 og upp í 60+-allir á sama máli.- Stöndum vörð um íslenskuna.

Haraldur Bjarnason, 28.6.2008 kl. 14:51

6 Smámynd: Gulli litli

Ég var að spjalla við kunningja minn á dögunum og barst talið að því hvar allir kynlegu kvistirnir héldu sig núna. Allir væru steyptir í sama mót og enginn sker sig úr......Niðurstaðan varð sú að nú væru það við sem teldust kynlegir kvistir. Held að þetta sé rétt, við erum risaeðlur dagsins í dag...

Gulli litli, 28.6.2008 kl. 14:59

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Gulli því miður hafa þessir kynlegu kvistir margir horfið en ég sé þá samt suma hérna enn þegar ég kem til Akraness eftir rúmlega 20 ára fjarveru, sem betur fer!...en því miður er búið að greina þá eitthvað...sem ekki var áður!

Haraldur Bjarnason, 29.6.2008 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband