Af hverju eru innfluttar mjólkurvörur ódýrari?

Nú þegar er mikið af mjólkurvörum flutt inn, meðal annars ís. Tók eftir því um daginn að innfluttir íspinnar og istoppar eru miklu ódýrari en þeir íslensku og það þrátt fyrir tolla og óhagstætt gengi fyrir innflutning.

Ef íslenskar mjólkurvörur eru svona góðar og hagkvæmar hlýtur að vera lag að flytja þær út. Norðmenn kunna t.d. vel að meta skyrið sem rokselst þar núna en það er framleitt í Noregi eftir íslenskri uppskrift.

Það er margt bogið við íslenskt landbúnaðarkerfi sem virðist vera bæði bændum og neytendum í óhag. Líklega myndu engir hér á landi hagnast eins vel á aðild að ESB og bændur


mbl.is Áfram verði tollvernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Málið er Halli, að ég hef búið erlendis og verð bara að segja, ath að þarna er einungis um persónulegt mat að ræða, að Íslenskur ís stendur t.d Dönskum ís langt að baki í gæðum og í því tilfelli eru tollar og vörugjöld einungis til þess að "vernda" undirmálsframleiðslu.  Mín vegna mætti alveg leggja Emmes ís og Kjörís niður ef þeir geta ekki verið samkeppnishæfir í gæðum og verði, varla er hráefnið sem þeir hafa til vinnslunnar neitt verra??

Jóhann Elíasson, 31.10.2010 kl. 13:33

2 identicon

Íslensk landbúnaðarvara er drasl samanborið við erlendar vörur, íslenskur ís bragðast eins og smjörlíki, íslensk skinka er bragðlaus, íslensk spægipylsa er sölt, íslenskir ostar eru eins og strokleður.Svo má ekki gleyma því að hún kostar þrisvar sinnum meira en erlendis þrátt fyrir óhagstætt gengi.

Útlendingar reka upp stór augu þegar maður segir þeim að á íslandi er bara til ein tegund af SMJÖRI. Það segir allt sem segja þarf um einokunarstefnuna á íslandi.

Arnar (IP-tala skráð) 31.10.2010 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband