Sjávarútvegsráðherrar hafa alltaf farið fram úr ráðgjöf Hafró

Vilhjálmur Egilsson og Samtök atvinnulífsins ganga nú hart fram að verja málstað örfárra "kvótaeigenda" í landinu. Manna sem telja sig eiga fiskinn í sjónum, sem þó er sameign þjóðarinnar allrar. Jafnvel forseti ASÍ virðist undir hælnum á LÍÚ líka. Þetta væri skiljanlegt ef þessi skötuselslög tækju aflaheimildir af LÍÚ mönnum en svo er ekki. Þeir halda sínu og geta meira að segja eins og aðrir leigt af ríkinu úr viðbótinni við kvótann. LÍÚ hefur haft hátt um að sjávarútvegsráðherra sé að stuðla að ofveiði með að láta veiða umfram ráðgjöf Hafró. Málið er hins vegar það að allir sjávarútvegsráðherrar frá árinu 2003 hafa gefið út meiri veiðiheimildir á skötusel en ráðgjöf Hafró segir til um. Það sést á þessari töflu:

Tafla - Ráðgjöf, heildaraflamark og afli skötusels  í tonnum, eftir fiskveiðiárum

Fiskveiðiár

A. Ráðgjöf  Hafró

B. Ákvarðað heildaraflamark

Mismunur

A – B =

Afli

2001/02

Engin ráðgjöf

1.500

.......

1.101

2002/03

Óbreytt sókn

1.500

*261

1.363

2003/04

1.500

2.000

500

1.903

2004/05

1.500

2.000

500

2.420

2005/06

2.200

3.000

800

2.832

2006/07

2.200

3.000

800

2.672

2007/08

2.200

2.500

300

2.921

2008/09

2.500

3.000

500

3.400

2009/10

2.500

2.500

                * mismunur heildaraflamarks og afla 2001/02

 Útbreiðsla skötusels hefur aukist mikið hér við land á síðustu árum vegna breyttra aðstæðna í lífríki sjávar. Til dæmis eru dæmi um að grásleppukarlar við Breiðafjörð hafi fengið allt að 8 tonnum sem meðafla í grásleppunetin í fyrra. Án efa var þá miklu af skötusel hent í sjóinn aftur því kvóti var vandfenginn og það sem hægt var að leigja af "sægreifum," hækkaði í verði eftir því eftirspurnin jókst. Þessir fiskar hafa ekki synt inn í reiknilíkön Hafró frekar en margir aðrir.

Það gengur ekki að LÍÚ beri bull á borð fyrir fólk og þar á bæ hefðu menn gott af því að skoða töfluna hér að ofan. Bullið frá LÍÚ hefur löngu gengið sér til húðar og þjónar ekki hagsmunum sjómanna, landvinnslu eða þjóðarinnar í heild. Allt tal þeirra samtaka og S.A. um brot á stöðugleikasáttmála er bull og þvaður, sem aðeins öfgahópar geta látið frá sér fara.


mbl.is Hvetur SA til áframhaldandi samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband