Skref í rétta átt

Þetta er skref í rétta átt en athygli vekur að aðeins 44 þingmenn taka þátt í atkvæðagreiðslunni og þar af voru bara 17 á móti. Kannski sýnir það að málið er ekki eins umdeilt og mbl.is segir í frétt sinni. Reyndar man ég bara eftir andmælum gegn þessu frá LÍÚ og nokkrum fylgisveinum þeirra hagsmunasamtaka. Næst er að bæta verulega við þorskkvótann og gera það á sama hátt. Jón bóndi Bjarnason er eini sjávarútvegsráðherrann frá því kvótakerfið var tekið upp sem þorir að hrófla við þessu kerfi og LÍÚ veldinu.

LÍÚ bullið hefur gengið fram af öllum að undanförnu. Meira að segja meginþorra þingmanna.


mbl.is Skötuselsfrumvarp að lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Atli Hermannsson.

Þetta skötuselsfrumvarp gæti markað nýtt upphaf og verið vísir að einhverju meiru er fram líða. Það hræðist LÍÚ forréttindaklíkan og taglhnýtingar hennar alveg óskaplega.

Er það annars ekki með ólíkindum að þeir sem hvað mest lofsyngja markaðslögmálin skuli snúast öndverðir og gera sjálfa sig að fíflum við það eitt að sjávarútvegsráðherra skuli veitt heimild til að losa lítillega um forréttindakerfi fáeina útvalina. Þá er ég að vísa til viðtals við Vilhjálm Egilsson í 10 fréttum núna áðan.   

Atli Hermannsson., 22.3.2010 kl. 22:43

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Atli. Það mætti ætla af ummælum Vilhjálms að útgerðarmenn fái ekki að senda skip sín á skötuselsveiðar lengur. Málið er það að þeir sem ráð yfir þeim kvóta fá sama áfram. Viðbótin verður leigð út til allra sem vilja. Þetta kemur til dæmis grásleppukörlum vel sem voru í vandræðum í fyrra og þurftu að leigja skötuselskvóta dýrum dómum af sægreifum þegar netin fylltust af skötusel. Við Breiðafjörð var ekki óalgengt að þeir fengju um 80 kíló af skötusel í netin. Þeirra val var að henda honum aftur í sjóinn, sem er lögbrot, eða leigja af einhverjum sægreifum frá LÍÚ sem hækkuðu verðið eftir því sem eftirspurnin jókst. Skötuselur er orðinn útbreiddur með allri vesturströnd landsins en fyrir nokkrum árum veiddist hann aðeins djúpt út af Suðurlandi. Sama er að segja um makríl en að þessu öllu vill LÍÚ klukan sitja ein en ekki hleypa smábátunum í sjávarbyggðunum að.

Haraldur Bjarnason, 23.3.2010 kl. 08:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband