Hefði ekki mátt doka aðeins við?

Bangsi virðist hafa fallið strax við fyrsta skot samkvæmt lýsingum enda bara ósjálfbjarga húnn á ferðinni. Hefði ekki í þessu tilfelli mátt doka aðeins við? Þetta var ekki stálpað dýr. Getur verið að nærvera við sauðfé hafi ráðið einhverju eins og lögreglumaðurinn lýsti áðan? Hvað þessar heilögu kýr okkar Íslendinga, rollurnar, voru að gera úti á þessum árstíma og það í hríð eins og lögreglumaðurinn lýsti. Það er hulin ráðgáta.
mbl.is Búið að skjóta ísbjörninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þó svo að þessi björn hafi ekki verið stór miðað við aðra ísbirni þá gæti hann samt auðveldlega stúða manneskju. Þú verður að átta þig á því að fullorðið karldýr getur orðið 700kg.

Hvernig dettur þér í huga að þetta sé ósjálfbjarga húnn. Hann kæmist ekki hingað ósjálfbjarga.

Óli (IP-tala skráð) 27.1.2010 kl. 16:19

2 Smámynd: Sigurbjörg

Nei, einmitt, hann hefur alveg örugglega synt hingað á bakinu á meðan hann skoðaði landakort.

Sigurbjörg, 27.1.2010 kl. 16:24

3 Smámynd: corvus corax

"Hvað þessar heilögu kýr okkar Íslendinga, rollurnar, voru að gera úti á þessum árstíma og það í hríð eins og lögreglumaðurinn lýsti. Það er hulin ráðgáta" spyr bloggarinn sjálfur. Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að rannsóknarlögreglan á höfuðborgarsvæðinu er búin að senda menn austur í Þistilfjörð til að aðstoða heimamenn við að rannsaka þessa huldu ráðgátu um það hvað rollurnar voru að aðhafast úti við á þessum árstíma ...og það í hríð! Rollurnar verða teknar til yfirheyrslu um leið og löggurnar komast á staðinn!

corvus corax, 27.1.2010 kl. 16:36

4 identicon

Jú það hefðiverið hægt bíða þangað til hann æti þig!

óli (IP-tala skráð) 27.1.2010 kl. 16:53

5 Smámynd: halkatla

Auðvitað hefði mátt doka við en fólk ætti að vera orðið vant greindarfari og hæfni þeirra sem íslendingar ráða í valdastöður og inná stofnanir til að taka svona ákvarðanir

halkatla, 27.1.2010 kl. 17:08

6 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Ég spyr nú bara, eftir hverju átti að doka við? Að hann réðist á rollurnar? Eða þeim mun verra, að hann yrði mannsbani? Nei ó nei þessar skeppnur eru fljótar í förum, og stór hættulegar, deyða þær strax og þær sjást fyrst þær nema land hér.

Hjörtur Herbertsson, 27.1.2010 kl. 17:35

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Samkvæmt viðbrögðum hér hefur þetta verið mikil skaðræðisskepna og eins gott að Íslendingar ráði yfir góðum riflum. Hann flúði samt undan öllum samkvæmt viðtölum í fréttum í kvöld enda vísað í skýrslu starfshóps um vá af bjarndýrum hversu smá sem þau eru.  Þar eru án efa miklir kunnáttumenn á ferð.

Haraldur Bjarnason, 27.1.2010 kl. 18:04

8 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Það er til nóg af hvítabjörnum! Vildi bara óska þess að sömu aðferðum væri beitt gagnvart sumum alþingismönnum okkar.

Þráinn Jökull Elísson, 27.1.2010 kl. 21:36

9 identicon

jájájá....rosa hræðilegt dýr ég veit, ég skil! Þótt að maður sé hlynntur að halda dýrinu á lífi þýðir ekki að maður sér algerlega tómur á milli eyrnanna! Flestir gera sér grein fyrir því að þetta sé enginn bangsímon. Ég er þreytt á þessum hræðsluáróður sem á sér hér í stað og virðist vera afsökun fyrir öllu! Hvað ef þitt barn, hvað ef hitt, hvað ef það!?! Það er alltaf verið að drulla yfir bandaríkjamenn fyrir svona áróður. Hvernig væri að líta í sinn eigin barm einu sinni. Ég er viss um að hér eru náttúrulega ekkert nema Ísbjarnar sérfræðingar á ferð og hafið líklega oft komist í kynni við svona hrylling og hafi margar reynslusögur til þess að koma áfram. Í gvöðanna bænum má ég heyra, setjið líka eitthvað blóðugt youtube video link með, plís!

Rosalega vitlaus kona (IP-tala skráð) 27.1.2010 kl. 23:38

10 identicon

Þeir hérna...

...BORÐA FÓLK, mkei? Ekki bara ef "þeim er ógnað", þeir borða fólk sér til matar, og eftir ferðina frá Grænlandi eru þeir væntanlega svangir.

Þetta eru ekki dýr eins og kettir eða hundar sem bindast fólki. Þeir BORÐA FÓLK, andskotinn hafi það!

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.1.2010 kl. 01:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband